Mig langar í kynlíf.
Neistinn kviknaði um daginn og ég get lítið hugsað um annað. Mig langar í eitthvað utan við það hefðbundna eða það venjulega kynlíf sem ég hef fengið undanfarið.
Ég get ekki neglt það niður nákvæmlega. Ég veit bara að mig langar í eitthvað krassandi, eitthvað ljúft, eitthvað sem fær mann til að sleppa fram af sér beislinu í unaði og nautn.
Ég vil hafa það hægt og innilegt, ég vil vera böðuð í athygli, ég vil... ég vil... ég vil þessa tilfinningu. Þessa tilfinningu sem maður fékk þegar maður var að stíga sín fyrstu skref... Þessa sem fær mann til að langa í meira og meira og meira.
...og meira.

Mig langar að upplifa kynlíf alveg upp á nýtt. Eða kannski að upplifa kynlíf með alveg nýjum einstaklingi.

Ummæli

Vinsælar færslur