Örfantasía

Ég er í svarta pilsinu sem ég á. Það nær niður á kálfa og mér finnst það klæða mig ákaflega vel. Ég fer í það og þröngan bol þegar ég vil láta línurnar njóta sín: stór brjóst og miklar mjaðmir.
Ég er beigð fram á borð, þú togar upp pilsið. Það skríður upp leggina sem eru klæddir í þunnt, svart nylon. Pilsfaldurinn dregst upp á við og í ljós kemur að þunna svarta nylonið tilheyrir háum sokkum. Sokkarnir eru festir í sokkabönd sem ná upp í þar til gert sokkabelti. Ég er í engu öðru að neðan.
Ég veit og ég finn að það æsir þig að sjá mig svona. Með pilsið upp um mig, bakhlutan berskjaldaðan og aðgengið gott. En hvað þú gerir í því....

Ummæli

Vinsælar færslur