Skósveinar

Fyrir margt löngu síðan fór ég í bíó. Ég skellti mér, ásamt fleirum á Skósveina (e. Minions). Sem betur fer fórum við þó á myndina með ensku tali. Ég er á því að maður eigi að sjá kvikmyndir með upprunalegu tali sé hægt að koma því við.

Nema hvað, þarna sat ég og horfði á þessa litlu gulu kalla gera allskonar óskunda og naut þess vel. 
Á einum tímapunkti var þeim hent ofaní dýflissu og það átti svo sannarlega að lumbra á þeim.
Eitthvað fór lumbrið forgörðum og í staðinn fóru þeir að leika sér með öll þau tól og tæki sem fyrirfundust í dýflissunni.
Ég iðaði í sætinu mínu af kæti!! Hvað voru þeir að gera annað en BDSM?
Þeir prófuðu allskonar pyntingagræjur og tól, brostu og hlógu og virkilega nutu þess sem fram fór. Leikurinn var í hávegum hafður hjá þeim og allir virtust skemmta sér.
Akkúrat þannig vil ég hafa BDSM, að allir njóti þess sem fram fer og hafi gaman af. Ekki spillti fyrir að þessi tölvugerða dýflissa var með öll möguleg og ómöguleg pyntingatæki og tól... Þetta var svona dýflissa sem fyrirfinnst ekki einusinni í klámiðnaðinum. Þó svo að hún hafi verið tölvugerð þá langaði mig í hana.

BDSM hefur komið fyrir víða á öldum ljósvakans, tónlist og tónlistarmyndbönd, bækur og kvikmyndir hafa skýrskotað til þess. Aldrei áður hef ég þó séð einhverskonar vísan í BDSM í efni ætlað krökkum. Þetta er hinsvegar ein sú besta mynd af BDSM sem ég hef séð á miðli sem þessum.

Svona eftirá að hyggja þá hugsa ég að handritshöfundarnir séu að einhverju leiti kinky....

Ummæli

Vinsælar færslur