Púki

Það er hlaupinn einhver púki í mig.
Ég er einhvern veginn orðin þreytt á öllu þessu sama gamla, sama fólkinu, sömu hittingarnir, sama farið.... Mig vantar krydd og spennu og smá líf í æðarnar. Ég væri til í augnagotur og gott daður. Að gleyma mér tímunum saman í spjalli sem kannski myndi svo leiðast út í ævintýri með eldheitum atlotum. Ég væri til í stolnar stundir. Ég væri til í að vera skotin. Og að viðkomandi væri skotinn í mér til baka. Ég væri til í að gjóa augunum að símanum í sífellu og vonast til að pípið gefi til kynna að það sé frá "honum".
Mig langar að henda mér út í eitthvað í einhverju kæruleysi. Fara langar vegalengdir á ókristilegum tímum til að eiga örfá augnarblik af hreinni sælu. Augnarblik sem ég lifi svo á næstu daga á eftir, þangað til annað slíkt augnarblik er í sjónmáli sem ég get látið mig hlakka til.

Mig langar að hleypa lífi í púkann og næla mér í smá tilbreytingu.

Ummæli

Nafnlaus sagði…
ég þekki þig :-9 ég væri til í svona með þér
Nafnlaus sagði…
Hljómar vel :)
Nafnlaus sagði…
Ég er giftur svo það yrði að fara leint
Nafnlaus sagði…
Skil þig svo vel, eftir langan tíma þá er ég finally kominn með smá ævintýri aftur en fokk þetta tók sinn tíma að finna :o
-Missdisa

Vinsælar færslur