Púki
Það er hlaupinn einhver púki í mig.
Ég er einhvern veginn orðin þreytt á öllu þessu sama gamla, sama fólkinu, sömu hittingarnir, sama farið.... Mig vantar krydd og spennu og smá líf í æðarnar. Ég væri til í augnagotur og gott daður. Að gleyma mér tímunum saman í spjalli sem kannski myndi svo leiðast út í ævintýri með eldheitum atlotum. Ég væri til í stolnar stundir. Ég væri til í að vera skotin. Og að viðkomandi væri skotinn í mér til baka. Ég væri til í að gjóa augunum að símanum í sífellu og vonast til að pípið gefi til kynna að það sé frá "honum".
Mig langar að henda mér út í eitthvað í einhverju kæruleysi. Fara langar vegalengdir á ókristilegum tímum til að eiga örfá augnarblik af hreinni sælu. Augnarblik sem ég lifi svo á næstu daga á eftir, þangað til annað slíkt augnarblik er í sjónmáli sem ég get látið mig hlakka til.
Mig langar að hleypa lífi í púkann og næla mér í smá tilbreytingu.

Ummæli
-Missdisa