Enn enn meira af fullnægingum

Ég sagði ykkur fyrir einhverju síðan að ég væri farin að iðka slökun við fróun og hversu vel það hefur gefist. 
Ég verð bara að impra á því hversu mikil undur og stórmerki það eru. Hversu mikil áhrif þessi smá tækni hefur haft á kynlífið mitt. Það er unaðslegt. Ég er mun fljótari að fá það en áður, samfarirnar eru oft mun innilegri, tilfinningin er mun dýpri og nautnafyllri en áður.

Ef að ég vil fá það þá gæli ég við snípinn á mér og ég slaka á. Tilfinningin dýpkar og unaðurinn verður meiri fyrir vikið. Leiðin að fullnægingunni styttist þá einhvernveginn og jafnan líður ekki á löngu þar til hún hellist yfir mig. 
Núna kemur það varla fyrir að ég vilji fá fullnægingu og að hún komi ekki. Þetta hefur meira að segja þau áhrif að rekkjunauturinn fullnægir mér oftar upp á eigin spítur. Í gamla daga gerðist það varla og það þurfti mikið til. Aðeins örfáum einstaklingum tókst það fyrir 28 ára aldurinn minn. 
Í dag hugsa ég að með viljann að vopni gæti ég fengið fullnægingu með hvaða rekkjunaut sem er án þess að þurfa að sjá um það sjálf að mestu leiti.  

Ummæli

Vinsælar færslur