Bak

Það er eitthvað við bakið á mér. Ég örvast eiginlega meira af gælum og snertinum við það en að framan. 
Mér finnst rosalega heitt að liggja á hliðinni, með karlmann fyrir aftan mig, og finna fyrir honum. Finna liminn hans við rassinn á mér. Finna andardrátt hans við hálsakotið og finna hann narta í öxlina, hálsinn, eyrað. Mér finnst æðislegt að liggja þannig og finna hann gæla við brjóstin á mér. Ef til vill klípa létt. Kannski fastar þannig að ég þrýsti mér enn meira að honum undan sársaukanum. 
Mér finnst unaðslegt að finna hönd hans leita niður eftir maganum, eða síðunni, yfir mjöðmina og fitla við mitt allra heilgasta. 
Þegar þannig er við komið elska ég að lyfta fætinum sem er ofar og leggja aftur, yfir mjaðmirnar á honum og veita honum betri aðgang að heilgidómnum, en á sama tíma að finna enn betur fyrir hörðum limnum.

Þetta er unaðsleg leið til að byrja á einhverju meira...


Ummæli

Vinsælar færslur