Loxins

Ég er búin að sitja og stara á tölvuskjáinn í korter. Kominn tími á að blogga en bloggið stendur á sér. Ritstífluð fyrir allan peninginn og hef þar að auki ekki frá miklu að segja. Ég vil að færslan sé skemmtileg og á kynferðislegu nótunum.... en það er lægð yfir landinu og líka á þeim vetvangi hjá mér.

Það sem ég get gert er að segja ykkur að ég fór í Góða hirðinn í gær. Venjulega væri það ekki frásögu færandi á kinky kynlífsbloggi, nema hvað í þetta sinn er það. Málið er að ég hef verið á höttunum eftir ákveðinni gerð af mélum í lengri tíma. Hrossamél meira að segja(stykkið sem fer upp í munninn á hestinum). Ég leitaði í dótabúðum á fróni, pantaði eitt af netinu sem ekki stóðst væntingar mínar og þræddi svo allar hestarvöruverslanir sem ég fann í leit að réttu mélunum. En án árangur. Ég er búin að horfa öfundaraugum á gag annarra perralinga sem eru svo heppnir að eiga svona, einmitt eins og mig langar í.
Í einhverjum fíflaskap bendir G mér á mél sem eru í búðarborðinu og spyr hvort mig vanti ekki svona. Þetta voru akkúrat mélin sem ég er búin að vera að leita að. Ég var ekki sein á mér og bað um að fá að handleika mélin. Á þeim tímapunkti lét G sig hverfa. Hann bjóst allt eins við því að ég myndi stinga þeim upp í mig til að máta í miðri búðinni.... Þó svo það hefði verið gaman, bara til að sjá framan í fólkið í kring, þá gerði ég það ekki. Hinsvegar keypti ég mélin og ætla mér algjörlega að nota þau, en ekki í hestamennskunni. Núna þarf ég bara draga upp leðurvinnudótið mitt, smella ól á mélin og fara að leika.

Ummæli

Vinsælar færslur