Að sannreyningu lokinni

Ég get varla tekið svona sterkt til orða. Hinsvegar hef ég prófað undanfarna daga að sofa á maganum, með það fyrir augunum að dreyma erótíska og/eða kynferðislega drauma. Viti menn, þessir vísindamenn hafa sennilegast rétt fyrir sér.
Í nótt í draumalandinu hitti ég ferlega ástleitinn lækni sem sinnti mér einstaklega vel. Ekki nóg með búa vandlega um bágtið á puttanum á mér, þá fannst honum mikilvægt að kanna alla eitla og eitt og annað sem verið gæti að mér. Hann fór mjög vel að því og vildi endilega hafa mig yfir nótt til að hafa góða gætur á mér. Erótíkin var allsráðandi og ég var sem leir í höndunum á honum, þó svo að ég sé enn á því að bágtið á puttanum hafi ekki verið svo alvarlegt að ég þurfti að vera yfir nótt á spítala. Draumurinn leystist svo upp í allskonar vitleysu eins og draumar eiga það til, en óneitanlega myndi þessi draumur flokkast undir það að vera erótískur.

Ég get þess vegna ekki annað en mælt með þessu! Sofið á maganum ef að ykkur langar að upplifa erótíska drauma.

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Mjög áhugavert blogg, og hef fullt af spurningum. Er að uppgötva hluti og vil leita til þín ráða... Hvernig er hægt að senda þér email?
Mjölnir sagði…
perrastelpa69@hotmail.com stendur þarna á hliðinni undir "HVER ER ÉG"

Vinsælar færslur