Eggjandi

Ég fór í BDSM partý síðasta sunnudag. Það var met mæting í partýið og margir voru þarna klæddir í sitt fínasta púss. Það var mikið leikið og nær allan tíman voru tveir, þrír eða fjórir leikir í gangi. Það var líka unaðslegt að vera meðal perralinga eftir nokkurra mánaða fjarveru frá viðburðum.
Það sem ég tók sérstaklega eftir var hve margir sem voru þarna voru fullir kynþokka. Maður sá þarna fólk klætt í leður, corset, latex, sokkabönd, pvc, með háar klaufir, stutt pils, flegna toppa og karlmenn sem voru berir að ofan. Maður sá þarna fólk sem var sjálfstraustið uppmálað og naut sín á sínum eigin forsendum. Þarna var fólk kynþokkafullt á sinn eigin mælikvarða, en ekki á mælikvarða fjölmiðla. Þarna var fólk sem hafði greinilega haft svolítið fyrir því að líta vel út og virkilega naut sín. Þetta voru ekki endilega grennstu stelpurnar eða mössuðu strákarnir, heldur fólk eins og ég og þú, sem hafði þó kjarkinn til að hafa sig til og sýna sig óháð samfélagslegum hugmyndum um fegurð og kynþokka.
Mér finnst fátt kynþokkafyllra en manneskja sem nýtur þess að vera hún sjálf og sýna sjálfa sig sem kynveru óháð öllu og öllum, Í þessu partýi var einmitt nóg af svoleiðis fólki.

Ummæli

Vinsælar færslur