Meira um partý

Í þessu partýi sem ég sagði ykkur frá var par sem ég þekkti ekki. Þau voru mjög upprifin og það var gaman að fylgjast með þeim drekka í sig það sem var í gangi. Seinna um kvöldið voru þau innarlega í salnum. Konan hallaði sér upp við súlu sem var partur af innréttingunni og maðurinn horfði á hana. Hún virtist veðrast öll upp við athyglina frá honum og sýndi nokkur tilþrif í súludansi fyrir manninn. Hún var ögrandi og æsandi í senn, hún virkilega kunni að laða fram seiðandi kynþokka í eigin fari og það var greinilegt að það æsti manninn. Hann horfði hugfanginn á hana á meðan hún dillaði sér upp við súluna. Þau voru þarna í sínum eigin heimi og ekkert virtist koma þeim við. Það var greinilegt að þau girntust hvort annað á þessu augnarbliki. Aðstæður buðu samt ekki upp á annað en ögrandi dans og dýrslegt lostafullt augnarráð. Þessar óhentugu aðstæður virtust jafnframt halda þeim við efnið, halda þeim á valdi lostans án þess að geta slökkt hann.
Ég fylgdist með þessu álengdar og ég verð að viðurkenna að ég æstist upp við að sjá þetta. Þessi kynorka sem var á milli þeirra var smitandi og ég sogaðist einhvernveginn inn í þeirra heim. Samt aðeins sem áhorfandi. Ég hefði ekki viljað taka þátt í þessu þó mér hefði verið boðið. Ég naut þess samt að fylgjast með þessu nær örfáu mínútur sem dansinn stóð yfir.

Ummæli

Mjölnir sagði…
Varst þú bara áhorfandi í partýinu eða lékstu þér eitthvað eða við einhvern???
Prinsessan sagði…
Í þetta skiptið var ég bara áhorfandi.

Vinsælar færslur