Kynlíf og ekki kynlíf

Ekki alls fyrir löngu sátum við nokkur saman og ræddum BDSM. Við ræddum hvað væri BDSM, hvað felist í BDSM, hvað er ekki BDSM og hvernig fólk upplifir BDSM. Hver og einn gerir það með sínu nefi en allt BDSM á það sameiginlegt að fyrir því liggur upplýst samþykki allra sem koma að máli. Þannig er ósamþykktur skellur á rassinn ekki BDSM á meðan kítl með fjöður sem búið er að samþykkja getur flokkast undir BDSM.
Margir setja BDSM í kynferðislegt samhengi. Fyrir marga er BDSM kynlíf. Punktur. Þeir líta ekki á BDSM og kynlíf sem sitthvorn hlutinn. Aðrir gera greinamun þar á og líta á kynlíf og BDSM sem sitthvort fyrirbærið sem getur farið saman en þarf ekki að fara saman. Enn aðrir slíta alveg á milli og vilja og geta stundað BDSM án þess að það sé kynferðislegt á nokkurn hátt. Ég þekki fólk af öllum þessum gerðum.

Ég er ein af þeim sem sem lítur á BDSM og kynlíf sem sitthvort fyrirbærið. BDSM í mínum huga getur verið mjög kynferðislegt og það er vel hægt að blanda saman BDSM og kynlífi. Hinsvegar get ég vel stunda BDSM án þess að það sé á nokkurn hátt kynferðislegt. Ef að ég er til dæmis bundin og hýdd með flogger er það útrás út af fyrir sig. Fyrir mér er það BDSM en ekki kynlíf.
Þegar leikir eru sérstaklega þungir og áherslan er á sársaukafull áreiti þá eru það leikir sem í mínum huga eru bara BDSM, ekki kynlíf. Í leikjum þar sem áherslan er á sársauka truflar kynferðislegt áreiti mig og mér finnst það ekki eiga heima með. Ætli það sé ekki þess vegna sem ég vil skilja á milli BDSM og kynlífs?
Svo eru aðrir leikir sem eru uppfullir af BDSM og kynferðislegri spennu. Þeir leikir eru án efa kynlíf í einhverri mynd. Mér er minnisstætt leikur þar sem hann, drottnarinn, var klæddur í svört jakkaföt, en ég, hin undirgefna, var nakin. Hann tók mig meðal annars yfir hnéið og rassskellti mig. Mér hefur sjaldan fundist ég jafn eggjandi og akkúrat þá. Sá leikur var líka löðrandi í kynferðislegri spennu og losta.
Svo höfum við innilegt kynlíf á jafnréttisgrundvelli sem gengur út á að veita hvort öðru unað, án þess að sársauki komi þar við sögu, bindingar eða leikur að valdi. Það er í mínum huga kynlíf án BDSM.

Eins og ég sagði þá sátum við nokkur og spjölluðum um upplifun fólks af BDSM. Einn í hópnum benti á að þar sem hann álítur BDSM vera kynlíf, þá hafi hann stundað kynlíf með mér í partýi fyrir einhverju síðan. Jújú, ég bað hann um smá leik í þessu partýi og hann batt mig niður á borð og rassskellti mig duglega. Ég bloggaði meira að segja um þetta. En ég áleit og álít þennan leik ekki hafa verið kynlíf á neinn hátt.
Þessi maður hefur þá stundað kynlíf með mér á meðan ég hef ekki átt kynferðislegt samneiti við hann. Upplýst samþykki lá fyrir því sem við gerðum, svo ekki var um ofbeldi eða nauðgun að ræða. En allt byggir það á því að við horfum sitthvorum augum á BDSM.

Ummæli

Vinsælar færslur