Undanfarið hefur ekki farið mikið fyrir kinkinu né kynlífinu hjá mér. Þar af leiðandi hefur lítið farið fyrir blogginu og fáar færslur komið inn. Það er löngu kominn tími til að bæta úr því, en fréttaefnið er heldur af skornum skammti.

Í morgun áður en G fór í vinnuna kvaddi hann með innilegu kúri, knúsi og kossi sem var ástríðufyllri en þeir sem ég hef fengið undanfarið. Hann var óvenjulega alúðlegur og þar sem hann tók mig í fangið sagði hann mér að við hefðum verið að stunda kynlíf þá nóttina. Hann bætti fljótlega við að við hefðum verið í tjaldi og að það hefði haft sína kosti og galla. Ég áttaði mig strax á því að hann var að tala um í draumalandinu, enda stundaði ég ekkert kynlíf þessa nótt. Mínar draumfarir voru allt annað en ánægjulegar og ég stóð mig að því að öfunda hann af kynlífinu sem hann stundaði með mér í tjaldi í draumalandinu. Ég hefði meira en verið til í að fá að vera með honum þar en maður fær víst ekki alltaf allt sem maður vill.

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Takk fyrir að halda þessu áfram. Hef fylgst með þér lengi.

Vinsælar færslur