Stærðin skiptir máli

Já þú last rétt: stærðin skiptir máli. Nýlega var gerð rannsókn þar sem konur voru látnar meta tölvuteikningar af nöktum karlmönnum. Almennt laðast konur meira að karlmönnum sem eru hávaxnir, með breiðar axlir og grannt mitti. Eftir að rannsakendurnir bættu limstærð inn í jöfnuna kom það í ljós að konurnar mátu menn með stærri limi meira aðlaðandi en þá sem voru með minni limi. Í rannsókninni voru hinsvegar slakir limir einungis til skoðunar en ekki limir í fullri reisn.

Stærð lima í slökun segir lítið til um stærð lima í fullri reisn. Þeir limir sem virðast litlir þegar þeir eru slakir eru einmitt þeir limir sem stækka mest við að fara í fulla reisn. Eins og fram kemur í heilræðavísum Stanleys: „lítil typpi lengjast mest“ – svona að meðaltali. Sjálfsagt eru til litlir limir sem lengast lítið og stórir sem lengjast mikið.

Skiptir það máli þegar kemur að bólförum? Sumar rannsóknir vilja meina að það skipti máli, fyrir sumar konur og sumar gerðir fullnæginga.

Konur geta fengið fullnægingar með ýmsu móti. Sumar konur fá fullnægingu með snípsörvun á meðan aðrar fá fullnægingu með örvun legganga, sumar fá eingöngu fullnægingu séu bæði svæðin örvuð. Aðrar konur geta fengið fullnægingu með örvun brjósta, með því að hugsa um fantasíu, í svefni eða meira að segja í ræktinni. Niðurstöður einnar rannsóknar leiddi í ljós að meirihluti kvenna sem fær fullnægingu í samförum með örvun legganga kýs stærri limi. Niðurstöður sömu rannsóknar bentu til þess að konur sem kjósa samfarir umfram öðruvísi kynlíf vilja líka stærri limi umfram minni. Fyrir þessar konur skiptir limstærðin máli.

Við vitum það hinsvegar flest að kynlíf er meira en samfarir einar og sér, heldur allskonar athafnir: allt frá fantasíum og sjálfsfróun, yfir í kossa, kelerí, fingra- og tungufimi og hvað annað sem örvar fólk kynferðislega. Þó svo að limstærðin skipti sumar konur einhverju máli, þá hafa fjölmargar rannsóknir sýnt fram á það að einstaklingurinn sem limurinn er fastur við skiptir mun meira máli en limurinn sjálfur. Sterk fylgni er á milli þess að njóta félagsskapar rekkjunautarins og ánægjunnar með kynlífið. Skemmtilegri rekkjunautur þýðir þá ánægjulegra kynlíf. Sé limurinn lítill á skemmtilegum rekkjunaut má vel bæta það upp með gervilim, titrara eða öðru skemmtilegu dóti. Mun erfiðara er að bæta upp leiðinlegan rekkjunaut þó svo hann sé með stóran lim.

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Geðveikt sexý saga, ég á nokkrar:))
Nafnlaus sagði…
Bara eitt blogg á öllu árinu! Þetta er ekki til eftirbreytni. Er enginn til að píska þig áfram í þessum skrifum?

Vinsælar færslur