Kyn-sníkjudýr

Á Íslandi er aukning í kynsjúkdómasmitum, sem er miður. Fólk er einfaldlega ekki að nota viðeigandi öryggisbúnað. Það sem meira er, það er eldra fólk sem er að smitast. Fólk í kringum fimmtugt. Fólk sem er að skilja og koma sér aftur á markað, ef svo má að orði komast.

Það er þó á fleiri stöðum í heiminum en á Íslandi þar sem kynlífstengdir kvillar eru að aukast. Ég las um daginn grein eftir samkynhneigðan bandaríkjamann sem sagði farir sínar ekki sléttar.
Hann hafði þann háttinn á að hann stundaði mikið kynlíf með mörgum rekkjunautum (það kom ekki fram hvort það væru margir í einu eða bara, einn rekkjunautur í einu mörgum sinnum). Hann stundaði líka allskonar kynlíf, hvort sem það var að totta, vera tottaður, ríða, vera riðið, rimma eða vera rimmaður. Þetta síðasta þekkja kannski ekki allir, en það hefur samt verið aðeins að ryðja sér til rúms. Það að rimma er nokkurnveginn munnmök við endaþarm. Sem sagt: rassinn og rassgatið sjálft er sleikt (eftir minni bestu vitund).

Hann fór svo óvænt að finna til magaverkja og fékk viðvarandi niðurgang. Eftir einhvern tíma án bót meina sinna fór hann til læknis og greindist með bakteríu í þörmunum. Þessi baktería eða sníkjudýr er jafnan tengd við þriðja heiminn þar sem vatn er mengað og hreinlæti er af skornum skammti.
Já, hann hafði sýkst af þessu snýkjudýri með endaþarmsmunnmökum. Svona sýkingar eru að aukast mikið með tilkomu þessarar iðju, en lítið hefur verið talað um þetta. Ég finn ómögulega greinina um þetta, svo þið verðið bara að trúa orðum mínum.

Ég verð að viðurkenna að mig hryllti við þessu og velti fyrir mér hvort það þurfi ekki snarlega að uppfæra kynfræðsluefnið fyrir grunn- og framhaldsskóla á Íslandi og efla og ýta undir notkun munnmottunnar við athafnir af þessu tagi. 

Ummæli

Vinsælar færslur