Bezt í heimi

Það er fátt sem toppar rjómaís þegar kemur að því hvað er bezt í heimi. Ég get þó nefnt nokkur atriði sem komast nærri því. Eins og þegar það myndast góð stemming í hópnum (hvaða hóp sem er), og maður heyrir það á skvaldrinu að allir eru að njóta sín, þegar maður hefur athyglina alla og veit að það er fylgst með manni af forvitni og hrifningu og þegar að maður fær að vita að maður hefur haft áhrif til góðs.


Þetta síðasta fékk ég núna rétt í þessu. Sem endra nær tók ég perra-netrúntinn minn. Fetlife, collarspace, perra-hotmailið mitt og svo einkamál. Inni á einkamál biðu mín skilaboð frá ónefndum manni. Í stuttu máli sagði hann mér að í gegnum mitt blogg hafi hann kynnst BDSM og þar með hafi áhugi hans kviknað á BDSM.

Þetta málið!! Þetta er ástæðan fyrir því að skrifa, eða amk partur af henni og svona skilaboð gera það alveg þess virði. Þó svo manni finnist nánast enginn lesa bloggið.

Í kvöld fer ég að sofa með gleði í hjarta yfir því að vita að bloggið mitt skiptir máli, og að það hefur áhrif til góðs.

Ummæli

dojob sagði…
Spurning...

Hvernig kveikir maður áhuga á maka á öðru en vanillu(ís) :o

.. dojob..
Nafnlaus sagði…
Þetta var falleg saga.

Þótt bloggið þitt hafi nú ekki vakið áhuga minn á BDSM - hann er áratugum eldri - þá gerði það sérstaklega á tímabili mikið fyrir mig með því að minna mig á að það væri fólk þarna úti, meira að segja bara hér á Íslandi, sem væri af sama tagi og ég.

Í guðanna bænum haltu þessu áfram!

Kveðja,
Desmos

Vinsælar færslur