Það styttist í að ég verði 35 ára. Það er að vísu alveg rúmur mánuður í það, en engu að síður þá styttist í það með hverjum deginum. Og svo virðist sem ég sé að skríða yfir einhvern ósýnilegan þröskuld í lífi mínu sem kynvera.
Ég er að fara úr því að vera.... ja.... ég. Meðal-Jónan. Yfir í að vera "eldri kona". Að minnsta kosti er ég farin að fá skilaboð héðan og þaðan frá strákum sem eru í kringum tvítugt, plús/mínús þrjú ár. Þeir hafa það sameiginlegt að vera spenntir fyrir "eldri konum".
Jújú, ég er vissulega eldri en þeir. Alveg tíu ár og gott betur. Ég einhvernveginn hélt samt að "eldri konur" væru eldri en ég.

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Til hamingju með daginn, þegar að því kemur :-)

Njóttu! Á hvaða hátt sem er.

dojob sagði…
Alveg róleg...

Hið nýja miðaldra er 50... átt langt í land..

Vinsælar færslur