Dótakaup

Ég skellti mér inn á aliexpress um daginn og keypti mér dót. Það er svo langt síðan ég hef keypt með kynlífsleikfang að ég átti fullt í fangi með að greiða úr öllu þessu framboði. Hvað var það sem mig langaði eiginlega í? Ef satt best skal segja þá vissi ég það ekki. Ég var að fara í gegnum greddutímabil og langaði í eitthvað til auka unaðinn. Fimir fingur duga bara svo og svo langt þegar um einleik er verið að ræða. Svo er alltaf gaman að prófa eitthvað nýtt með sínum ekta-manni.
Eftir nokkurra klukkutíma vangaveltur þá keypti ég mér sníp-sugu. Einhverjum vikum seinna og einni hleðslu var hún tilbúin til notkunar.

Jii minn eini! Margt hefur breyst frá því ég var lítil! Þetta litla tæki var ólíkt öllu öðru sem ég þekkti. Það var alveg geggjað gott að mörgu leiti og ég mæli alveg með svona tæki. Í þriðja eða fjórað sinn sem ég notaði það mundi ég samt eftir því að ég er ekkert svakalega hrifin af dóti sem fer beint á snípinn. Það er einfaldlega of mikil örvun fyrir mig, og unaðurinn og nautnin getur hæglega breyst í pyntingu. Sníp-sugan fær því hlutverk spari-leikfangs í dótakistunni minni og verður bara tekin fram við sérstök greddu tilefni, þegar greddan og örvunin er það mikil að engin hætta er á að ofgera sér.

Ég pantaði mér líka annað dót, en ég segi ykkur frá því seinna ;o)

Ummæli

yari3 sagði…
Þessi ummæli hafa verið fjarlægð af höfundi.
yari3 sagði…
Hey.I saw your profile on EM.
Nafnlaus sagði…
Þarf maður alltaf að byrja öll komment á "hundasúra" :-)

Hvaða leikfang er best.. veit að smekkur er mismunandi.. en ef hvað annað en egg og kanínutitrara ætti sérhver dótakassi að skarta?

Kveðja
ComputerSaysNo

Vinsælar færslur