Gömul kynni


Þegar ég vaknaði í morgun var ég með þreytuhausverk og illt í brjóstunum. Það var seiðandi greddutilfinning í píkunni, eins og ég hafði eytt nóttinni í kynlífssvall. Í gegnum þreytumókið fór ég að átta mig á þessu. Ég hafði farið á ircið. Já, sumir gera það ennþá. Þar rakst ég á gamlan spjallfélaga. Við spjölluðum mikið fyrir mörgum árum síðan. Það var mjög skemmtilegt að hittast svona aftur og rifja upp gömul kynni. 

Í fyrstu snérist spjallið um lífið og tilveruna. Hvað var að frétta, hvað var nýtt frá því síðast. Hjá mér voru það tvö börn og eitt sambandsslit. Hjá honum var þaða ein háskólagráða og kærasta. Síðan fórum við að slá á gamla strengi.
Fljótlega var ég komin með tölvuna upp í rúm, með heyrnartól á eyrunum að horfa á klám með honum. Hann skrifaði inn það sem hann vildi segja og ég svaraði með því að tala í heyrnartólin. Tilfinningin var svolítið súrrealísk en mjög æsandi. Ég talaði og las svo svarið frá honum á skjánum. Við horfðum á hvert myndbandið á fætur öðru. Hann bað mig að lýsa því sem ég sá og hvað mér finndist um hitt eða þetta í myndbandinu, en aðallega hvað mér finndist um líkama kvennanna.
Þegar ég hugsa til baka þá hefur hann verið mjög naskur á að lesa í mín viðbrögð, því þegar á leið voru myndböndin meira og meira í áttina að því sem ég fílaði. Áður en ég vissi af var ég líka orðin mjög gröð. Enda fór þá að hitna í kolunum og hann fór að stýra því sem ég gerði við mig.
Ég átti ýmist að taka um brjóstin á mér, kreista og snúa upp á geirvörtuna, eða halda með flötum lófa um píkuna á mér, eða ekki gera neitt. Ég get svo svarið það að oft var stærsta áskorunin að gera ekki neitt.
Ég var orðin svo gröð á tímabili að það var erfitt að hætta að gæla við sig þegar hann sagði svo. Ég emjaði af óánægju og grátbað um meira. Það kom svo að því að ég mátti halda áfram og fróa mér þangað til ég fengi það. Það æsti mig mikið vitandi að hann var að hlusta. Ég naut þess í botn og upplifði þessi atlot mín ekki sem sjálfsfróun.
Þegar ég svo fékk það var það djúp og innileg fullnæging sem skók mig alla. Ég hristist í ósjálfráðum krampakenndum hreyfingum og engdist um í smá stund eftir að ég fékk það. Það tók mig langan tíma að ná mér niður eftir þetta, svona miðað við aðrar fullnægingar. Þá áttaði ég mig á því að klukkan var orðin mjög margt og við höfðum verið í þessu í fleiri klukkutíma. 

Þannig að þetta átti sér allt skýringar. Þreytuhausverkurinn, eymslin í brjóstunum og seiðingurinn í píkunni sem vildi mjög svo endurtaka leikinn.

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Vel gert! :-)

Vinsælar færslur