Kossinn

Ég er búin að vera með örfantasíu í höfðinu á mér í allan dag. Hún dúkkar upp hvað eftir annað.

Eins og aðrar örfantasíur er þetta rétt eitt augnarblik.

Ég stend á miðju gólfi. Fyrir framan mig er hávaxinn maður. Ég er ennþá í jakkanum mínum. Hann beygir sig yfir mig og kyssir mig ofurlétt á varirnar. Hans varir rétt strjúkast yfir mínar og öll mín athygli er á þessari léttu og seiðandi snertingu. Í henni er nautn, þrá og fyrirheit um eitthvað meira...

Ummæli

Vinsælar færslur