Örfantasía

Ég ligg nakin á bakinu í rúminu. Hendur og fætur eru bundin hvert í sína áttina. Það rökkur í herberginu og það er hlýtt þar inni. Hér og þar er kveikt á kertum sem kasta mjúkri birtu á herbergið. 
Þú stendur yfir mér og horfir á mig í smá stund áður en þú kemur þér fyrir á milli fóta minna. Ég þykist vita hvað kemur og líkami minn líka. Ég æsist öll bara við það að þú sért að koma þér fyrir. 
Ég finn létta snertingu á innanvert lærið, mögulega var það skegg, eða varir, eða bæði? Þú vinnur þig upp að píkunni minni og ég reygi mig á móti þér. En við það bakkaru frá! Þú veist hversu mikið ég vil þetta, en þú veist jafnvel betur hversu æsandi mér finnst að fá ekki það sem mig langar. Þegar ég ligg orðið kyrr þá kemuru aftur nær. 
Þú andar að þér ilminum af mér. Þú ert svo nálægt mér að ég held niðri í mér andanum. Ég vil ekki missa af neinu, ekki einu augnarbliki, ekki einum andardrætti af þínum vörum. Loks finn ég ofurlétta snertingu á öðrum skapabarminum. Snertingin var svo létt að ég er ekki alveg viss. Snertiru mig ekki örugglega? Aftur kemur létt snerting, þessi endist örlítið lengur, en ég er viss í þetta skiptið. Fljótlega fylgir önnur. Ég finn fyrir vörum þínum á ytri skaparbörmunum. Þú tekur annan skapabarminn upp í þig og sýgur þétt. Ég styn af nautn við þessi atlot. En mig langar í meira, og þú veist það. Þá finn ég fyrir tönnunum þínum. Þú bítur þéttingsfast í barminn sem er upp í þér og togar. Ég hrópa upp yfir mig, bæði af undrun og sársauka. Ég bjóst ekki við þessu! 
Í einu vetvangi er erótíkska yfirbragðið sem fyllti herbergið orðið að einhverju allt öðru.

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Hljómar eins og það sé verið að leika sér með aðalréttinn eða er þetta forrétturinn :-)

ComputerSaysNo

Vinsælar færslur