Tippamyndir

Ég átti stutt spjall við vinkonu mína í dag. Hún var að segja mér frá gaur sem var að senda henni tippamyndir. Það skemmtilega við þetta spjall var að hún fílaði það í tætlur! Eða réttara sagt þá fílaði hún þetta tippi í tætlur. Hún hafði mörg orð um hvað limurinn væri fallegur og stæðilegur og hvað hana langaði í hann. Ég hló, einfaldlega af því að ég tengi ekkert við þetta. Ég hef áhuga á því sem er fast við liminn en ekki limnum sjálfum. Hún sagði mér þá að hún hafi alveg sofið hjá mönnum bara af því að limurinn væri girnilegur.

Svona erum við skemmtilega misjöfn eins og við erum mörg

.

Ummæli

Vinsælar færslur