Það er pakki á leiðinni

Í dag eru tveir dagar síðan dótið mitt átti að koma í síðasta lagi. Ég sem sagt pantaði mér titrara, af því að ég átti engan sem hentaði vel til einleikja með sjálfri mér. Tiltölulega einfaldur, held ég, sæmilega sver og aðeins yfir meðallagi langur, svona miðað við aðra titrara sem ég skoðaði. Ég átti mér uppáhalds titrara sem gaf upp öndina fyrir alveg löngu síðan. Ég er ansi hrædd um að enginn komi í staðinn fyrir hann. Þörfin hefur líka ekki verið fyrir hendi, þannig að ég hef ekki fundið mig knúna til að fjárfesta í öðrum. Fyrr en þessi misserin. Það eru nokkrir dagar síðan ég fór að bíða eftir honum. Mig langar að prófa hann, mig langar að fara að koma honum í notkun. Mig vantar útrásina með honum! Mig vantar þessa djúpu, innilegu, nautnalegu fullnægingu, sem ég fæ bara með sjálfri mér og með réttu leikföngunum. Ég hef ekki átt réttu leikföngin lengi, þannig að þetta er orðin uppsöfnuð þörf.



Ég verð víst bara að bíta í það súra og halda áfram að bíða. Þetta er þó ákveðin æfing í þolinmæði. Þolinmæðisvöðvinn minn er orðinn geðveikt sterkur.

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Þegar ég les þetta, þá eru 6 dagar liðnir frá færslunni. Vonandi ertu búin að fá það (þ.e. pakkann).

-Úlfur

Vinsælar færslur