Bíómyndasexý

Maður heyrir það oft og mörgum sinnum að venjulegt kynlíf og kynlíf í bíómyndum á ekkert skylt. Því venjulegt kynlíf er subbulegt, hrátt, ákaft, ósexý oft á tíðum, ekki klippt og skorið, og fullt af mistökum og mis-gáfulegum hlutum. Á meða kynlíf í bíómyndum er hreint, sexý, hnökralaust, og alltaf með góðri lýsingu!

Ekki alls fyrir löngu átti ég svona bíómyndasexý stund. 
Þegar við komum inn á hótelherbergið þá ýtti hann mér upp að veggnum, tók báðar hendur mínar í sínar og hélt þeim fyrir ofan höfuðið á mér á meðan hann kyssti mig ákaft. Svo teygði hann sig í handaólarnar og hálf dösuð rétti ég fram hendurnar svo hann gæti sett þær á mig. Ólarnar voru breiðar og mjúkar, og svart leðrið fór höndunum á mér vel. 
Ég fékk ekki langan tíma til að dást að ólunum, því hann snéri mér frá sér og ýtti mér aftir upp að veggnum. Af eðlisávísun þá bar ég fyrir mig hendurnar. Þá tók ég eftir því að það var stór spegill festur á vegginn, beint fyrir framan mig. Ég horfði á sjálfa mig í speglinum og sá ólguna krauma í augunum á mér. Svo kom hann aftan að mér með hálsólina. Ég rétti úr mér til að gefa honum aðgengi að hálsinum á mér þannig að hann gæti sett ólina á mig. Hún var í stíl við handaólarnar, breið og úr mjúku svörtu leðri. Þegar ólin var komin á sinn stað strauk hann mér allri. Í speglinum horfði ég á ólina á hálsinum á mér. Ég horfði á mig með ólina á mér og var ánægð með það sem ég sá. Ég horfði svo á hann og eitt augnarblik náðum við augnsambandi í speglinum. Ákaft augnaráð hans fékk mig hér um til að kikna í hnjánum. Hann tók um hendurnar á mér og lyfti þeim upp yfir höfuð á mér og hvíldi þær upp að spegilinn. Ég horfði á hendur okkar fléttaðar saman. Hann kyssti mig á hálsinn og strauk mér allri, og ég þrýsti mér upp að honum. Ég fann fyrir honum allsstaðar, líkami hans var þétt upp við minn og munnur hans gældi við bert hold mitt þar sem hann fann það. Í speglinum sá ég atlot okkar á sama tíma og ég varð drukkin af losta. Ég hef sjaldan upplifað mig jafn eggjandi og akkúrat þarna!

Þetta var algjörlega bíómyndasexý, og hefði mögulega alveg gengið í Hollywood stórmynd (að því gefnu að ólasett myndi virka í svoleiðis mynd). Meira að segja lýsingin var góð. 

Ég sé það alveg fyrir mér; þegar hann svo yfirgefur hótelherbergið daginn eftir dvelur myndavélin augnarblik á handaförunum, sem ennþá sjást á speglinum, þegar dyrnar á herberginu lokast á eftir honum.

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Þarna hefði vantað flugu á vegg, með myndavél.

Vinsælar færslur