Ferðafantasían í raunheimum

Ég birti gamla sögu hérna fyrir einhverju síðan. Sagan ber heitið Ferðafantasía.
Stuttu eftir að ég birti söguna fékk ég póst frá manni sem hafði upplifað nánast það sama og gerðist í sögunni. Hann var í jeppaferð með einhverju fólki. Þau gistu í skála, í heita pottinum fór að bera á snertingum á milli hans og einnar konunnar í ferðinni. Það æxlaðist svo að þau fengu svefnpláss hlið við hlið og þegar leið á nóttina hitnaði þeim í hamsi.
Sagan mín byggir lauslega á ferð sem ég fór í fyrir mörgum árum. Aðal söguhetjurnar eru til í alvörunni, en það varð ekkert heitt og sveitt kynlíf í skálanum þessa nótt. Kannski smá draumórar, sem náðu þó aldrei neitt lengra.

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Virkilega gaman að lesa þessa pistla þína. Mér finnst eins og ég komist aðeins bak við tjöldin...inn í kvennheima. Ég er að vaxa sem kynvera eftir langt hjónaband í rúteneruðu kynlífi. Skildi semsagt og setti mér það að fara yfir víðan völl og prófa allt sem mér leist vel á. Hef rekist á margt, prófað og ekki prófað, en það sem heillar mig er þessi tilfinning að mótaðilinn er opin og móttækilegur fyrir smáatriðum.. þessum litlu hlutum sem einhvernvegin sitja eftir. Rækileg reið er alltaf góð, en það situr ekki lengi í manni..já ég er að fíla hvernig þú setur þetta upp.
kv. N.

Vinsælar færslur