Korsettið mitt

Munið þið eftir veðmálinu sem ég vann en tapaði samt? Ef þið munið ekki eftir því þá er allt um það hér. Í verðlaun, eða sárabætur, þá fékk ég korsett. 

Ég tók mér góðan tíma í að velja það. Hvað mig virkilega langaði í, hvað passaði mínum vexti og myndi

ýkja upp línurnar sem ég er svo stolt af, hvað hentaði í safnið og frá hvaða framleiðanda mig langaði í korsett. Á endanum datt ég niður á gullfallegt korsett frá Mystic city corsets. Gamla uppáhalds korsettið mitt er einmitt frá þeim, leðurkorsett sem er guðdómlegt og hentar mér fullkomlega. Ég hafði meira að segja svolítið fyrir því að finna framleiðandann aftur.
  
Um síðustu helgi fékk ég svo korsettið í hendurnar. Ég fékk smá aðstoð við að klæða mig í það, en þegar það var reimað þétt á mig þá hreinlega gapti ég. Ég á bara eitt orð…. sem er ekki orð heldur upphrópun… Vá!! Það var geggjað! Það ER geggjað!! 
Ég get ekki beðið eftir að geta notað það meðal manna. Hvar eru leikpartýin og kink-partýin þegar maður þarf á þeim að halda?

Fokk covid!

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Leðurkorsett eru mjög svo ögrandi. Veit ekki hvort það flokkast sem fetish eða bara góður smekkur en þá finnst mér almennt leður alltaf vera sexy. Reyndar er galdurinn við undirföt, korsett, lingerie sett að þau sýna helling en um leið hylja nægilega mikið til að skilja eitthvað eftir fyrir ímydunarafl áhorfandans.... líkt og góð Hitchcock mynd.

Kveðja
ComputerSaysNo

Vinsælar færslur