Kloflausar sokkabuxur

Það eru alls ekki allar fantasíur sem mig langar að láta rætast en stundum dúkka upp fantasíur sem mig langar að prófa á eigin skinni. Eins og örfantasían sem ég sett inn um daginn. Þar sem hann rennir höndinni undir pilsið mitt á opinberum vettvangi, og upp lærið þangað til hann finnur píkuna mína…. Örfantasían náði ekki lengra en það. Yfirleitt eru þær líka bara svona brotabrot sem dúkka upp í hausnum á mér.

Nema þessi, það er eitthvað við hana sem kitlar mig. 
Kannski er málið að ég er í ögrandi skapi, mig langar að gera eitthvað djarft og mig langar að fara út fyrir þægindarammann minn. 
Lykilatriðið í þessari fantasíu eru kloflausu sokkabuxurnar. Það gæti líka verið sokkar og sokkabelti. Bara eitthvað sem lítur út fyrir að vera venjulegur klæðnaður þannig að engum myndi detta í hug að ég væri ber undir pilsinu. Síðan vantar bara fallegan klæðnað yfir með pilsi sem auðveldar aðgengi að mínu allra heilagasta, viljugan leikfélaga (ég er með einn nú þegar í huga) og tilefni eða aðstæður til að láta fantasíuna verða að veruleika.


Þessi þankagangur er búinn að valda því að ég er búin að eyða góðum tíma í að skoða kloflausar sokkabuxur á netinu. Ég er ekki enn búin að finna þær réttu, en leitin heldur áfram. Jú, sko, til að fantasían gæti yfir höfuð orðið að veruleika vantar þessar sokkabuxur. 
Stundum þarf talsverðan undirbúning og dágóða heimavinnu til að fantasíur get
i orðið að veruleika.

Ummæli

Vinsælar færslur