Kynveran ég

Undanfarið hef ég upplifað sjálfa mig sem mikla kynveru. Ekki það að ég sé sérlega gröð, heldur finnst mér ég vera eggjandi á einhvern fyrirhafnarlausan máta. Það er kannski athyglin sem ég hef fengið undanfarið, kannski er það almennt velgengnin í lífinu, kannski (alveg pottþétt) er það betri sjálfsmynd, kannski er það jákvætt hugarfar. Kannski er það vissan um að það er maður þarna úti sem finnst ég vera ótrúlega æsandi og hikar ekki við að segja mér það. Mér finnst ég allavega vera eggjandi, girnileg, æsandi og ég virkilega nýt þess.

Ég held að það geri það að verkum að sjálfstraustið vex og ég þori að sýna meira þessa hlið á mér, sem gerir það að verkum að ég upplifi þetta enn meira. Þetta er eins og spírall sem vindur sig upp á við. Mér finnst að allir ættu að fá sér svona spíral. Það er pottþétt gott fyrir heilsuna.



Ummæli

Unknown sagði…
Flott ertu Stella og mig langar í þig virkilega
Prinsessan sagði…
Mikið er Stella heppin, það er svo gott þegar einhvern langar virkilega í mann.

Vinsælar færslur