Bestu fullnægingarnar 1/2

Þegar ég hugsa um kynlífið mitt í gegnum tíðina þá sé ég ákveðna toppa. Stundum virka þeir ekkert merkilegir út á við, en hafa mikið gildi inn á við. Ég á til dæmis tvær uppáhalds fullnægingar. Kannski ekki uppáhalds en klárlega eftirminnilegastar. Ég veit ekki hvaða fullnægingar ættu þá að vera uppáhalds.... æjj, ég er komin í hnút með þetta. Höldum áfram. Mig langaði að segja ykkur frá þeim. 
Þær eru svo gjör ólíkar hvor annarri, og öðrum fullnægingum sem ég hef fengið. 

Ég hef verið sennilega 19 ára (eitt ár til eða frá) þegar fyrri átti sér stað. Ég átti bólfélaga sem ég hitti reglulega og við prófuðum eitt og annað saman. Í þessum hitting var áherslan á rassleiki. 
Ég lá á bakinu með titrara í píkunni, hann var hvítur og örlítið sveigður upp til að örva g-blettinn. Limurinn hans var í rassinum á mér. Ég man ekki hvort hann var bara á hnjánum eða ofaná mér. Það skiptir ekki öllu máli. Það sem máli skiptir var að fljótlega fann ég að fullnæging var að byggjast upp. Það merkilega í þessu var að ég var ekki sjálf að fitla við snípinn á sama tíma. Hreyfingar hans, inn og út úr rassinum á mér þrýstu taktfast á titrarann í píkunni og örvuðu mig þannig að ég sveif á vængjum fullnægingarinnar. Ég gapti af undrun þegar ég áttaði mig á því hvað væri að gerast, ég var að fá það án þess að fitla sjálf við snípinn. Það hafði aldrei gerst áður! Þetta var algjört met. Það að ég fái það án þess að ég sjálf sé að fitla við mig líka hefur sjaldan gerst á lífsleiðinni, aldrei fyrir þetta atvik og sjaldan eftir það. 


Ummæli

Vinsælar færslur