Bestu fullnægingarnar 2/2

Ég man ekki hvað ég var gömul þegar hin eftirminnilegasta fullnægingin átti sér stað. Einhversstaðar á bilinu 23-29 ára sennilega. Ekki að það skipti neinu máli. 
Við G sátum saman yfir sjónvarpinu. Hann var eitthvað að fitla við mig, utanyfir öll föt. Ég man að ég var þægilega gröð við þetta. Þetta var mjög ljúft, en ég var ekki spólandi, fyrr en á leið. Myndin kláraðist og það færðist aðeins meiri hiti í gælurnar. Við drifum okkur inn í herbergi og hann skipaði mér úr að meðan og að leggjast á rúmið. Ég lá til fóta og hann lyfti mjöðmunum á mér upp til að mæta sér þar sem hann gæddi sér á mér. Stellingin var afkáraleg en eitthvað varð til þess að ég fékk það þarna, hratt, örugglega og áreynslulaust við munngælur hans. 
Ég man að ég var orðlaus á eftir. Við vissum bæði að þetta var eitthvað merkilegt, eitthvað sem gerðist ekki oft. Ég hélt að ég væri þarna búin að finna lykilinn að fullnægingum þar sem þyrfti ekki sjálf að koma að. Það var hinsvegar ekki svo gott. 

Þó svo að kringumstæðurnar hafi verið mjög ólíkar við báðar þessar fullnægingar þá áttu þær það sameiginlegt að ég þurfti ekki að fróa mér á sama tíma. Karlmönnunum tveim tókst einhvernveginn að laða fram fullnægingu án þess að ég ætti þar hlut í máli. Fyrir mig er það sérstakt, þar sem ég þarf hér um bil alltaf að fitla við mig sjálf til að fá það. Hvort sem ég er ein eða með öðrum. 

Ég verð að viðurkenna það að við það að skrifa þessa færslu þá langar mig..... 

Ummæli

Vinsælar færslur