Móttökur


Ég gekk inn ganginn í blokkinni hans og hann beið eftir mér í dyragættinni að íbúðinni sinni. Hann bauð mig velkomna og á vörum hans var þetta óræða glott hans.
Hann lokaði dyrunum á eftir mér og áður en ég vissi af var hann búinn að ýta mér ákveðið upp að veggnum, hönd hans hélt þétt utanum hálsinn á mér og hélt mér fastri á meðan varir hans og tunga fóru ákveðið um mínar. Ég náði ekki heilli hugsun á meðan á þessu stóð. Ég man samt að það hvarflaði að mér að þrátt fyrir þétt og ákveðið handtak hans á hálsinum á mér og ofsann í atlotunum þá voru kossar hans blíðir. Ég hreinlega lamaðist þarna í höndunum á honum og gleymdi algjörlega stað og stund. Þegar hann svo bakkaði frá og losaði takið á hálsinum á mér stóð ég eftir vönkuð. Tungumálið virtist hafa yfirgefið mig og ég kom ekki upp orði. Það kom mér hálfpartinn á óvart að ég væri ennþá í útifötunum.
"Úr fötunum og inn í stofu" skipaði hann mér þegar ég var aðeins farin að ná áttum. Án þess að hika gerði ég eins og mér var sagt og fylgdi honum inn í stofuna. 

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Langar að lesa um það sem eftir kom.
Þú hefur skemmtilegan ritstíl.

Vinsælar færslur