Litla vinkona mín

Að eiga kinky vini er alveg dásamlegt. Það er geðheilsubætandi svo ekki sé meira sagt. 

Ég á vinafólk sem ég kíki reglulega á. Þennan daginn mætti ég til þeirra í hádeginu. Einhverra hluta vegna var 8 ára dóttir þeirra heima en ekki í skólanum. Hún sat yfir okkur þegar við röbbuðum saman yfir kaffibolla, svona eins og börn gera. Enda erum við miklar vinkonur, ég og þessi 8 ára. 
Við fórum að ræða lífið og tilveruna og vinkona mín (sú eldri) spurði hvort ég væri eitthvað að brasa. Ég glotti við og sagði að ég væri alltaf eitthvað að brasa. Ég bætti við að ég væri búin að komast að því að það væri ferlega gott að fá heimsendingarþjónustu, og ég nýtti mér það við hvert tækifæri. Sú stutta blandaði sér þá í samtalið og sagði með tilþrifum: Já! Mér finnst líka rooosalega gott að fá heimsendingarþjónustu! 

Ég og mamma hennar horfðumst örstutt í augu áður en við sprungum báðar úr hlátri. Tárin voru farin að leka áður en ég náði að hemja mig aftur. Sú stutta horfði forviða á okkur án þess að átta sig á því hvað væri eiginlega svona fyndið. Kannski sem betur fer. 

Ummæli

Vinsælar færslur