RMSSSDLP

Í gær var fyrsta RMSSSDLP partýið síðan í covid. Í rúm tvö ár hef ég ekki farið í leikpartý (fyrir utan það sem ég hélt sjálf). Vitiði hvað? Það var æðislegt!! Það var algjörlega meiriháttar!!! 

Í fyrsta lagi fékk ég tækifæri til að klæða mig í kinky-gallann og gera mig fína. 

Í öðru lagi fékk ég tækifæri til að hitta marga dásamlega perralinga sem ég hef kynnst í gegnum senuna. 

Í þriðja lagi þá sá ég aukna breidd í partý-flórunni. Þarna var fólk af öllum kynjum og öllum hlutverkum. Dommar, dómínur, subbar, bandingjar, hvolpar, þrælar, blætis-lið, bindarar, sadist, masókistar, og svona má halda áfram að telja.

Í fjórða lagi þá fékk ég að fylgjast með nokkrum dásamlega skemmtilegum leikjum, þar sem leikendurnir nutu sín í botn, og áhorfendur fengu hráar tilfinningarnar og öskrin beint í æð. 

Í fimmta lagi, þá fékk ég að binda eina stúlku í partýinu. Það gerist ekki oft, en þarna stökk ég á tækifærið þegar það gafst. Eða kannski að ég hafi fallið í freistni. Kannski bara bæði? Engu að síður var það mjög skemmtilegt, og ég vann bindikeppnina. 

Eftir partýið fór ég út svífandi á bleiku kinky-skýi. Ég held að ég hafi ekki almennilega áttað mig á því hve mikið ég saknaði partýjanna fyrr en á heimleiðinni. 

Ummæli

Vinsælar færslur