Skot

Ég lenti í einu um daginn sem hefur ekki gerst í ár og öld. Allavega heillengi. Ég var að spjalla við mann og allt í einu hljóp fiðringur um mig alla. Ég bjóst svo innilega ekki við því að þetta kom mér verulega mikið á óvart. Það sem kom mér jafnvel meira á óvart var að þetta skildi gerast gagnvart manni sem er undirgefinn. 

Jújú, ég er skiptir, og jú, ég hef leikið við karla sem bæði drottna og eru undirgefnir. En hinsvegar laðast ég hér um bil aldrei kynferðislega að þeim sem eru undirgefnir. Ég veit ekki hvað það er en þannig er það bara. En þarna kom það. Þessi fiðringur um allan líkamann og í kjölfarið löngun til að gera eitthvað meira með honum. Hinsvegar var þetta ekki staður né stund til að skoða það nánar.... hvað sem framtíðin svo ber í skauti sér. 


Ummæli

Vinsælar færslur