Fantasía

Mig langar í kúr. Mig langar að leggjast upp í rúm og kúra mig upp við þig, með bakið og rassinn í kviðinn á þér. Mig langar að vefja höndunum á þér utanum mig og finna öryggið í örmunum þínum. Mig langar að finna nefið þitt við eyrað mitt og varir þínar snerta hálsinn á mér. Mig langar að finna þig kyssa mig, akkúrat á staðinn minn, fyrir ofan herðablaðið.... og hvort sem það leiðir af sér eitthvað meira, eða bara áframhaldandi kúr, þá skiptir það ekki öllu máli. Bara á meðan ég má vera lítil í fanginu á þér. 

Ummæli

Vinsælar færslur