Tippabragð

Fyrir örfáum árum síðan svaf ég hjá manni. Þessi maður hefur einstaka hæfni í rúminu, hann les bólfélagann eins og opna bók. Það var unaður einn þegar hann reið mér, þar sem hann skipti um stellingar og notaði tækni og hreyfingar sem ég þekkti ekki áður. Hann einbeitti sér að mér og mínum viðbrögðum og hagaði kynlífinu eftir því. Draumur einn! 

Nema, það var eitt sem sló mig alveg út af laginu gagnvart honum. Svo mikið að ég er ennþá hugsi yfir því. 

Eftir dásamlegar bólfarir og unaðslegan drátt þá fór ég niður á hann. Ég tottaði hann vel og lengi þangað til hann fékk það upp í mig. Eftir að ég kyngdi brundinu skreið ég í fangið á honum og ætlaði að kyssa hann. Hann snéri sér undan. Ég horfði á hann með undrunarsvip og hann sagði þá að hann vildi ekki fá tippabragð upp í sig. Ég átti ekki orð! 

Sem betur fer er þetta eini karlmaðurinn sem ég hef hitt (svo ég muni) sem hefur haft þetta viðhorf. Annars er ég þeirrar skoðunar að ef þú vilt ekki fá "tippabragð" upp í þig, ekki biðja þá bólfélagann um að setja tippið á þér upp í sig! 

Ummæli

Vinsælar færslur