Læknisheimsókn

Ég fór til háls-, nef-, og eyrnalæknis um daginn. Ég komst að því að ég er með grasserandi kynnholubólgur og vesen sem hefur eflaust varað í langan tíma. Það skýrir kannski orku- og kynlífs-áhugaleysi undanfarinna vikna. 

Læknirinn þurfti að skoða nefið á mér að innan með myndvél á langri snúru. Ég kveinkaði mér eitthvað og ég gat svo svarið það að hann glotti við því. Síðan var myndataka og við tóku pyntingar í hægri nösinni á mér.
Hann hafði að vísu lofað mér því að þetta yrði sárt, en ég bjóst ekki við því að mér myndi líða eins og hann væri að rífa úr mér jaxl! Ég gretti mig af sársauka þrátt fyrir að vera deifð, og glottið kom um leið aftir á hann. Það fór ekki á milli mála að hann hafði mjög gaman af því að pína mig þarna. 
Undir lokin sagði ég glettnislega við hann að hann væri eflaust óttalegur sadisti inn við beinið. Karlfauskurinn hló við og sagði "ætli það ekki" en það var eins og hann áttaði sig og dró það strax til baka. Það þykir eflaust ekki mjög faglegt ef læknir viðurkennir að hann njóti þess að pína sjúklinga, en það fór ekki á milli mála að honum fannst þetta mjög gaman. 
Ég hafði líka mjög gaman af viðbrögðunum hans og varð óhræddari við gretta mig og geyfla. Ég var samt ekkert að ýkja því þetta var ógeðslega vont!! 

Eftirá hef ég hugsað mikið um þessa læknisheimsókn. Á einhvern brenglaðan máta naut ég þess að vera í höndum hans, þar sem hann fór langt út fyrir þægindarrammann minn. Bæði er það skrítið að einhver sé yfir höfuð að grandskoða nefið á manni, og svo að þurfa að treysta viðkomandi til að stinga forneskjulegri töng upp í það til að krukka í því, og sitja kyrr undir slíkum pyntingum. 

Þessi heimsókn hreyfði við einhverju kinky innra með mér, og núna langar mig í meiri pyntingar og meira kink. Kannski eru það bara sýklalyfin sem eru farin að slá á sýkinguna og uppsöfnuð þörf er farin að dúkka upp? Hvort sem það er, þá er löngunin að kvikna. 

Ummæli

Vinsælar færslur