Bylgjur


Ég er á skrítnum stað þessa dagana (vikur og mánuði). Almennt er ég áhugalaus um kynlíf og kink, nenni ekki samskiptum í kringum það og finnst það bara vinna sem veitir mér litla ánægju.
Á hinn bóginn kemur það reglulega fyrir að ég verð rosalega gröð og verð alveg heltekin af því. Þá langar mig að fá útrás, helst hér og nú! Þá langar mig að leika eða allavega eiga góðan bólfélaga sem getur sinnt mér. Þessi gredduköst endast jafnan í einn til þrjá daga. Það of stuttur tími til að byggja upp einhverskonar samband við karla sem gætu orðið góðar hjásvæfur, og oft þegar eitthvað spjall er komið af stað, þá er greddukastið búið og áhugaleysið aftur tekið við.

Núna er ég að koma úr einu svona greddukasti. Hef verið að spjalla við alveg þrjá karlmenn sem mér fannst álitlegir rekkjunautar eða kinky leikfélagar. Tveir af þeim senda mér núna skilaboð eftir skilaboð og ég veit ekki alveg hvernig ég á að snúa mér út úr þessu. Eða hvort ég eigi yfir höfuð að gera það, því það kemur að því að annað greddukast ríði yfir og mig langi að leika, þá er gott að hafa einhvern í takinu. En ég veit heldur ekki hvenær það gæti orðið, vika? Mánuður? Tveir? 

Það sagði enginn að það væri einfalt að vera manneskja. 

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Ég var einmitt að taka eftir þessari bylgju hjá þér....

Ég sting upp á: Láta þá vita af þessum bylgjum hjá þér, halda sambandi við þá, og næst þegar þú ert komin í gang.... hafa samband við þá báða, í einu .....

(ef þeir eru til, það er....)
Prinsessan sagði…
Hurru... Ég prófaði það, lagði öll spilin á borðið og allt.
En nei, ég fékk ekki einusinni svar.

Þannig að maður er aftur kominn á byrjunarreit.
Nafnlaus sagði…
Ekkert svar frá hvorugum? Það finnst mér lélegy.

Vinsælar færslur