Eftir endurkomu læknistímann

Ég hitti sadista-lækninn aftur í gær. Enn á túr og langt frá því að vera upp á mitt allra besta.
Ég hlakkaði samt til án þess að vita við hverju væri að búast. Enda er síðasta heimsókn búin að sitja í mér, á góðan hátt. 

Þegar ég var komin inn til hans og hann kíkti á skýrsluna mína sagði hann kæruleysislega: Já, ég var að meiða þig síðast. Eins og ekkert væri sjálfsagðara! Ég varð hálf hvumsa en játti því samt. Hann spurði hvernig ég hefði það eftir síðustu heimsókn og ég bar mig vel.

Þegar hann var búinn að renna yfir það sem stóð á skjánum sagði hann mér að setjast í stóllinn. Sjálfur settist hann á koll fyrir framan mig, þannig að hnéin okkar snertust, hans utan um mín. Síðan kíkti hann í nefið á mér og sagði mér að ennþá væri grasserandi sýking í kynnholunum. 

Þar sem hann sat þarna fyrir framan mig minntist hann brosandi aftur á pyntingar síðustu heimsóknar og sagði að ég hafi sent honum mjög ákveðið augnarráð á meðan á þeim stóð. Það var greinilegt að hann mundi vel eftir því og að honum hafi ekki fundist það leiðinlegt.

Síðan stóð hann á fætur og fór eiga við tæki og tól. Hann sagði mér þá að venjulega væri þetta nú gert í svæfingu en þegar hann treysti sjúklingnum væri hægt að gera þetta svona í deyfingu. Ég varð svolítið upp með mér og fannst mikið til mín koma. 

Þarna kom hann líka á grundvallarreglu BDSM, sem er traustið. Hann treysti mér til að sitja undir pyntingunum og ég treysti honum til að vita hvað hann var að gera. 

Með því að minnast svona á fyrri heimsókn þá fékk ég líka þá viðurkenningu sem ég var að sækjast eftir. Ég mundi svo vel eftir síðustu heimsókn, og hún ýfði upp hjá mér kink-löngunina. Síðasta heimsókn virtist líka vera honum minnisstæð og það gladdi mig. 

Ég fór að hugsa þetta eftirá. Ég laðast ekki að þessum manni. Hann er langt frá því að vera mín týpa. En eftir að hafa upplifað ánægju hans við að pína mig, og hvað ég naut þess að vera pínd, þá kveikti það neista. Ef ég myndi detta um hann í BDSM- heiminum þá hugsa ég að ég myndi vilja alveg vilja taka leik með honum. 

Svo er endurkoma í apríl, svo þetta er ekki alveg búið ennþá. 

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Hljómar eins og þú hafir hitt lækninn í Litlu Hrillingsbúðinni..

Sé enn eftir að hafa ekki séð Ladda í því hlutverki... heyrist þú fáir að hitta þinn þrisvar. Muna bara að biðja ekki um eiginhandaráskrift þó hann útskrifi þig næst.

Kveðja
ComputerSaysNo

Vinsælar færslur