Þessi gaur

Endur fyrir löngu fór ég í leikpartý. Í leikpartýinu sá ég mann. Ég hafði ekki séð hann áður. Hann var brosandi, léttur og mjög áhugasamur og það sem fram fór. Ekki ómyndarlegur heldur. 

Þessi brennandi áhugi hans gerði hann mjög aðlaðandi í mínum huga og ég fylgdist með honum útundan mér megnið af kvöldinu. Hinsvegar sat hann með hóp af fólki og ég hafði ekki kjarkinn í mér til að ryðjast þar inn til að kynnast honum frekar. Enda bjóst ég við að sjá hann aftur í senunni þar sem hann var nú mættur í leikpartý og þetta líka áhugasamur. 


Ég hef ekki séð hann síðan. 

Hann kemur samt reglulega upp í huga minn og ég stend mig að því að skoða gaumgæfilega hverjir ætli að mæta í leikpartý og hverjir stefna á munch, með það fyrir augum að finna hann. Ég hef skoðað prófíla á fetlife og hugsað með mér; Ætli þetta sé hann? Ég hef meira að segja mætt á munch þar sem einhver sem gæti verið hann hefur meldað sig. Allt til einskins.

Hver er svo boðskapurinn með þessari færslu? Ef maður sér einhvern sem manni lýst á þá á maður að nýta tækifærið. Það gæti verið að það komi ekki aftur. 

Ummæli

Vinsælar færslur