Abbó

Ég á dásamlega vinkonu sem ég segi hér um bil allt, að sama skapi segir hún mér hér um bil allt. Ég hef nokkrum sinnum bloggað um hana vegna þess hve opinská hún er gagnvart samskiptum kynjanna og kynlífi.

Eftir nokkrar misheppnaðar tilraunir hjá henni til að finna sér rekkjunaut á sínum aldri á Tinder þá stakk ég upp á því að hún myndi kannski taka einn ungann. Hún var ekki lengi að finna einn ungan og viljugan sem hún hefur verið að hitta undanfarna mánuði. Sá hefur aldeilis slegið í gegn hjá henni og dekrar hana út í eitt. Hún segir það sjálf að ef hann væri einhverjum 15 árum eldri væri hann alveg efni í góðan kærasta, en vegna aldursmunarins þá er hún ekki tilbúin til að taka sambandið þeirra út úr svefnherberginu. 

Núna áðan hringdi hún í mig, uppfull af þörf til að deila með mér. Hún sagði mér að vinur sinn hafi viljað koma henni á óvart. Hann sagði henni ekki hvernig eða við hverju hún mátti búast fyrr en hann bankaði upp á eitt kvöldið og skartaði þessu fína yfirvaraskeggi. Einhverju sinni hafði hún nefnilega minnst á það við hann að hún fílaði mjög vel menn með yfirvaraskegg. Kauðinn mundi það og þegar mottumars reið í garð nýtti hann tækifærið og kom henni á óvart með einni glæsilegri mottu. 

Ég skal játa það að ég er abbó! Ekki það að ég fíli eitthvað sérstaklega menn með yfirvaraskegg, en þessi framkoma hans í hennar garð er mjög heillandi. Hún sagði honum einhverntíman að hún fílaði þetta, hann geymdi það hjá sér og þegar tækifæri gafst lét verða af því. Mig langar í þannig!! 

Kannski ég ætti að breyta aldursviðmiðunum mínum á Tinder?

Ummæli

Vinsælar færslur