Sjálfsfróun

Nú þegar ennþá bólar ekkert á álitlegum leikfélaga eða rekkjunaut hef ég snúist til þess að styðjast við mínar tvær eigin hendur til að fullnægja mér. Þær eru auðvitað bestar í því en ég hef aðeins verið að breyta til. 

Í morgun lá ég uppi í rúmi, ég þurfti ekki að fara á fætur alveg strax þegar vekjaraklukkan hringdi, þannig að ég dró sængina aftur yfir mig og strauk ljúft yfir svæðið sunnan heiða, ég strauk yfir þykka skapabarmana og mjúku húðina á milli þeirra. Mér til mikillar undrunar var ég vel blaut og það æsti mig svolítið. Ég fann snípinn og fór að fitla við hann. Ég fann hvernig líkaminn tók við sér við áreitið og straumur fór um mig. Ég stoppaði þá í smástund, leyfði líkamanum að koma niður áður en ég hófst handa aftur. Þegar fingurnir snertu snípinn aftur var hann næmari, tilbúnari fyrir áreitið. Ég strauk hann létt og svo aðeins fastar, ég fann líkamann spennast upp og andardráttinn þyngjast. Þá stoppaði ég aftur, það var erfiðara en í fyrra skiptið. Þegar ég fann að ég var að koma niður aftur þá leyfði ég fingrunum að gæla við píkuna mína, hún var þá þegar blaut og þrútin og löngunin fyllti mig. Ég leitaði uppi næman snípinn sem var meira en tilbúinn að fá meiri atlot. Eftir nokkrar strokur og nudd var ég orðin andstutt og heit í framan og ég fann að ég nálgaðist fullnæginguna. Ég stoppaði rétt áður en hún skall á mér. Það var erfitt því líkami minn öskraði á meira. Mér tókst að sitja á mér í smástund áður en ég leitaði aftur upp þrútinn snípinn. Við fyrstu snertingu helltist hún yfir mig, líkami minn herptist saman, stuna leið frá munni mér og ég gaf mig á vald tilfinningunni. Einn lítil snerting hafði valdið fullnægingu hjá mér! 

Ég hef lesið um svoleiðis en ekki upplifað það svona sjálf. Þetta var áhugavert og alveg tilefni til frekari æfinga.

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Ah... halda sér á brúninni.... hvað nærðu að halda þér á brúninni lengi? Alltaf að örva aaaaðeins... og bakka svo .....
Og svo kemur töfra snertingin, og sprenging
Prinsessan sagði…
Ég er nefnilega alls ekki góð í þessu. Þarfnast frekari æfinga.
Ég hugsa að það sé auðveldara að gera þetta með öðrum en einn.
Nafnlaus sagði…
Jæja... hvernig gengur að æfa sig? :-)
Prinsessan sagði…
Ekki vel! Bara alls ekki...
Nafnlaus sagði…
Hmm.... Á ég að setja þér fyrir heimaverkefni?
Næst þegar þú ferð í bað? eða sturtu?

Prinsessan sagði…
Það má ;)
Nafnlaus sagði…
Í kvöld, þegar þú lest þetta, þá er það heitt og gott bað. Olíur, og freyði....
Taktu með þér svona egg-timer, og stilltu á hámark, (amk 60 mínutur) Þú þarft að sjá hversu mikið er eftir....

Svo byrjar þú að snerta þig, en passar að fá það ekki. Ef þú ert komin of nálægt, þá hættirðu, og bíður í ca. 5 mínútur.

Þegar það eru 7 mínútur eftir á egg-timernum, þá, og þá fyrst, máttu sleppa því að hætta við.........

Klifraðu. Og.... stökktu!

Vinsælar færslur