Oddur af oflæti
Ég gerði dót sem ég geri alla jafna ekki. Ég hef haft þá reglu að sækja mér félagsskap við karlmenn og leikfélaga lengra í burtu. Ég vil helst ekki að fólk í nærsamfélaginu viti hvað ég er að bauka, svo þetta hefur verið reglan.
Ég braut odd af oflæti mínu um daginn þegar ég skellti einum til hægti á Tinder. Sá býr hérna skammt frá og ég hafði séð til hans af og til.
Ég braut odd af oflæti mínu um daginn þegar ég skellti einum til hægti á Tinder. Sá býr hérna skammt frá og ég hafði séð til hans af og til.
Viti menn, hann gerði slíkt hið saman og við mötsuðum. Í kjölfarið upphófst svolítið spjall og fljótlega var ákveðinn spilahittingur heima hjá honum. Við spiluðum svolítið (ég vann!) og fengum okkur í glas og spjölluðum fram eftir kvöldi. Það varð hinsvegar ekkert meira það kvöldið.
Við endurtókum leikinn rúmri viku seinna, ég bankaði upp á, hann bauð upp á bjór og við spiluðum (ég vann aftur!).
Ég virti hann fyrir mér þar sem hann sat á móti mér hinum meginn við borðið. Hávaxinn, með dásamlega falleg og góðleg augu, og stórar og sterklegar hendur. Það er ekki lítið sem mig langar að finna þær snerta mig.
Undir borði rakst fóturinn minn utaní hans og þessi litla snerting sló mig algjörlega út af laginu. Öll athygli mín fór í þessa örlitlu snertingu og einbeitingin fór út um þúfur. Ég þurfti bókstaflega að taka á honum stóra mínum til að halda áfram með spilið. Þetta stóð samt stutt, því fljótlega færði hann sinn fót frá mínum. Mér bæði létti og sárnaði svolítið. Kannski hafði hann ekki þannig áhuga á mér. Kannski var ég mun viljugri í að taka þetta lengra en hann þetta kvöld.
Eftir spilið spjölluðum við saman um allt milli himins og jarðar, og ég komst á flug þegar ég sagði honum frá tengslum umhverfis nútímans, símanotkunar og dópamín framleiðslu heilans. Þegar mér varð litið á hann sá ég hann horfa á mig á þennan undarlega máta, örlítið bros lék um varir hans og augun voru einbeitt á mér, eins og hann væri alveg heillaður. Ég varð svolítið vandræðaleg ef satt best skal segja, það eru nefnilega örugglega komin ár og öld síðan ég hef fengið athygli á borð við þetta.
En þetta var samt dásamlegt! Það var svo gott að finna að hann horfði svona á mig. Ég sá hann gjóa augunum niður líkama minn og ég naut þess að sitja þarna og vera álitin kynvera, vitandi að það væri jafnvel einhverjar krassandi hugsanir í kollinum á honum.
Kvöldið leið án þess að það drægi til tíðinda. Jú, fætur okkar snertust af og til undir borðinu og það var mjög notalegt. En það varð ekkert meira en það.
Kvöldið leið án þess að það drægi til tíðinda. Jú, fætur okkar snertust af og til undir borðinu og það var mjög notalegt. En það varð ekkert meira en það.
Ykkur að segja, þá hef ég aldrei verið að "deita" einhvern svona. Yfirleitt er það skýrt frá upphafi hverju ég er að sækjast eftir, en núna hreinlega veit ég það ekki. Mig vantar ekki mann, en það væri samt gott að fá nánd frá annarri manneskju af og til, og ég hef ekki hugmynd um hverju hann er á höttunum eftir.
Núna erum við sem sagt bara að hittast, spjalla og njóta samveru hvers annars, og það er gaman. Skemmtileg tilbreyting frá hinni leiðinni þar sem ég segi í upphafi hverju ég er að leitast eftir.
Og vitið þið hvað? Ég veit ekki einusinni hvort hann sé kinky!! Það finnst mér eiginlega agalegt!
Ummæli
Spurðu hann beint út hverju hann sé að leytast eftir?
Og segðu honum hvað þér finnst, nánd og allt það.