Þriðja stefnumótið

Eftir annað skemmtileg spila deit með kauðanum var mig farið að langa í meira. Mig langaði að finna meira fyrir honum en léttar fótasnertingar undir borði.
Ég var komin með yfirvarp til að fá hann heim til mín; ég bað hann að hjálpa mér með rólustólinn sem hafði dottið niður úr loftinu. Ég var meira að segja búin að nefna hvort laugardagurinn myndi henta í það og fékk jákvætt svar, en ekkert fast í hendi samt. 

Laugardagurinn kom. Ég vissi að hann var að vinna framanaf, en sjálf nýtti ég tímann í að gera fínt heima hjá mér, dekra við sjálfa mig, raka mig á vissum stöðum og gera mig sæta. Upp undir kvöld fæ ég skilaboð frá honum þar sem hann segist vera búinn að vinna og býður mér með sér í kvöldgöngu. Það kom svolítið flatt upp á mig. Hann varð þá fyrri til að stinga upp á einhverskonar hitting en ég. Að sjálfsögði sagði ég já og við fórum í heillanga göngu í kvöldsólinni. 

Á heimleiðinni bauð ég honum inn. Ég bauð honum bjór, við settumst í sitthvorn endann á sófanum og spjölluðum áfram um daginn og veginn. Eftir smávegis spjall þá ákvað ég að láta vaða og spurði hreint út hvort ég mætti sitja hjá honum. Hann játti því og á augabragði var ég búin að vefja hendinni á honum utanum mig og kúra mig upp við hann.

Þá loksins fékk ég snertingu þessara handa sem ég hafði látið mig dreyma um og það var mun betra en ég hafði gert mér í hugarlund. Eftir smávegis spjall, svolítið þukl og nokkrar tilraunir til að koma sér betur fyrir, þá tók hann af skarið og kyssti mig. Það var svo óendanlega ljúft og gott! Hann kyssir líka svona rosalega vel. 

Það sem á eftir kom bjóst ég aldrei við og ég held að ég hafi aldrei upplifað aðra eins nótt. 

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Nú þarftu að koma með sögu af nóttinni......
En gott hjá ykkur báðum :-)

Vinsælar færslur