Fingrafimi

Undanfarið hef ég komist að því að píkan mín hefur svæði sem geta veitt mér ómælanlegan unað og nautn. Eitthvað sem ég þekkti ekki fyrr og hreinlega vissi ekki af. Draumaprinsinn er einstaklega lúnkinn við að finna staði til að örva sem koma mér beinustu leið upp í sjöunda himinn. 

Hvar hefur hann verið allt mitt líf? 

Og hvernig stendur á því að enginn annar virðist hafa fundið þessa staði fyrr? 

En samt, ég vissi ekki einusinni af þeim, hvernig get ég ætlast til þess að aðrir karlmenn rambi bara á þá? Kannski er það þessi draumur minn að einhver leggi það á sig að læra á mig út í gegn, finna hvaða staðir virka og hvernig, og geta leikið á mig eins og harmonikku. Draumaprinsinn virðist einmitt vera á þeim buxunum og ekki kvarta ég.

Hann nennir líka að skeggræða þessa hluti og hefur sagt mér hvernig píkan mín kemur honum fyrir sjónir, að utan og innan. Hvað hún er falleg, hvar hún er mjúk sem silki og hvar hún er hrjúf viðkomu, hvar hún er næmust, hvaða staði hann þarf að snerta og hvernig til að fá mig til að grípa andann á lofti. Hann hefur leikið sér að því að fá mig til að emja af unaði og það finnst mér meiriháttar!

Þetta gerir það líka að verkum að ég er fljótari að fá það með honum en mörgum öðrum. Hann veit hvernig er best að örva mig og hvar ég fæ mest út úr snertingunni. Ég fæ það líka vel með honum, fullnægingarnar eru djúpar og alltumlykjandi og endast sumar hverjar í langan tíma á eftir. 

Ég elska að geta rætt svona um kynlífið og krufið það, og hef komist að því að það gerir það bara betra. Ekki bara betra, heldur miklu betra. 

Ummæli

Vinsælar færslur