Kvöldheimsókn
Þegar ég renndi upp að húsinu hans sá ég að Draumaprinsinn var með fólk í bílskúrnum hjá sér. Ég var ekkert að blanda mér í það, í staðinn fór ég inn til hans og beint inn í svefnherbergið hans.
Klukkan var orðin margt og ég var mjög þreytt. Þrátt fyrir það þá langaði mig í nándina og snertinguna við hann. Ekki endilega kynlífið, bara nálægðina.
Ég berháttaði mig og skreið undir sængina. Hún ilmaði af honum og mér fannst það óendanlega gott að umvefja mig svona lyktinni af honum, finna vissa nálægð við hann þrátt fyrir að hann væri ekki á staðnum. Eftir smástund kom hann inn í herbergi til mín, brosti til mín og gaf mér koss en sagðist eiga eftir að gera eitt og annað áður en hann kæmi sjálfur í rúmið. Síðan var hann farinn. Ég heyrði í honum vera að stússa eitthvað í íbúðinni, en fljótlega var ég farin að dorma og sofnaði þarna í rúminu hans.
Ég veit ekki hversu lengi ég svaf áður en hann kom sjálfur í rúmið. Ég fann líkama hans við hliðina á mínum, nálægðina og snertingu sem mig langaði í. Ég kúrði mig upp við hann og fann hvernig það slakknaði enn meira á mér áður en svefnhöfginn náði aftur tökum á mér.
Akkúrat þarna, akkúrat svona vildi ég vera.
Ummæli