Líkamslykt
Ég hef áður skrifað að mér finnist líkamslykt góð. En mér finnst ekki öll líkamslykt af öllu fólki góð. Ég átti góðan hitting við einn fyrir nokkru síðan. Það var gaman, við nutum okkar, en lyktin af honum höfðaði enganveginn til mín. Mér fannst hún allt að því vond! Það var stór hluti ástæðunnar að við gerðum aldrei neitt meira.
Það væri fróðlegt að vita hvernig hann upplifði mína lykt? Hvort að við pössuðum bara ómögulega saman lyktarlega séð.
Mér finnst líkamslyktin af Draumaprinsinum mjög góð. Hún er einhvernveginn áþekk minni og þær fara mjög vel saman. Ég elska að hjúfra mig upp að nakinni húð hans og finna ilminn af honum. Ég elska að vera með andlitið í klofinu á honum og finna lyktina af honum, karlmannlega en þó ekki yfirþyrmandi. Ég elska að finna lyktina hans loða við minn eigin líkama eftir nótt af innilegum atlotum. Þá fer sælustraumur um mig og mér hlýnar að innan.
Það er ótrúlegt hvað svona þannig lagað lítið atriði getur skipt miklu máli.
Ummæli