Örfantasía
Ég stend við eldhúsvaskinn og horfi út um gluggann, hljóðið í kaffikönnunni ómar í morgunþögninni á meðan hún fyllir tvo bolla af ilmandi kaffi. Ég er í síðum bol einum fata, öll mjúk eftir leiki næturinnar.
Ég heyri í þér ganga inn í eldhúsið. Þú kemur aftanað mér og tekur utanum mig. Ég halla mér upp að nakinni bringu þinni og gef frá mér sæluhljóð. Hendur þínar strjúka mér létt og leita uppi faldinn á bolnum. Ég veit hvert þær eru að fara og finn að það kviknar á mér um leið.
Ummæli
Feztife