Kynfæri og gott kynlíf

Draumaprinsinn tröllríður veröld minni þessa dagana. Ég veit, ég hef varla skrifað um annað undanfarið. Ég hef bara ekki kynnst öðru eins. Ég geng um á bleiku skýji og sé ekki sólina fyrir honum. Það er ekki bara af því að hann er mjög hávaxinn, en það er svo sannarlega mikill kostur. 

Við pössum ótrúlega vel saman. Meira að segja, og sérstaklega, kynfærin. Hann er með meðal lim að lengd myndi ég halda, en hann er ótrúlega sver. Það hentar még mjög vel og þegar hann rennur inn í mig þá finn ég mjög vel fyrir honum. Hann er það stuttur að hann getur riðið mér þétt og fast án þess að ég meiði mig undan honum. Það er einmitt þannig sem mér finnst best að ríða! Allar stellingar með honum veita mér ómældan unað.
Meira að segja þannig að ég get eiginlega ekki klöngrast yfir hann á leiðinni frammúr rúminu án þess að vilja renna honum inn í mig og njóta þess að hafa hann undir mér og inni í mér í smástund. Að vera svona ofaná er stelling sem ég hef aldrei notið neitt sérstaklega. Ég hef gert það af og til af skyldurækni en ekki endilega af því að mig langaði það sérlega mikið. En með honum þá get ég setið svona heillengi og bara notið þess að finna fyrir honum. 

Hann er líka þannig gerður að hann nýtur kynlífsins án þess að markmiðið sé fullnæging, hvorki mín né hans. Þannig að við njótum kynlífsins unaðsins vegna. Nautnin fer frá því að vera notaleg nánd yfir í kynferðislega og fulla af ástríðu og svo niður aftur. Ég þekki þetta hjá sjálfri mér, en hef ekki hitt mann sem er á sömu línu og ég hvað þetta varðar. Mín reynsla er sú að oft er fullnæging markmiðið, eða einhverskonar BDSM eða valdaleikur. Sjaldan er notið bara til að njóta. 

Ég kann virkilega mikið að meta það.   

Ummæli

Vinsælar færslur