Örfantasía

-- Þessi kom ljóslifandi til mín núna um daginn -- 

Þú ert ennþá sofandi inni í rúmi þegar ég opna tölvuna snemma morguns, aðeins klædd í þægilega peysu og nærbuxur, og með morgunbollann við höndina. Ég set heyrnartappana í eyrun til að hljóðið veki þig ekki og opna zoom-fundinn.

Eftir nokkra stund kemuru fram, örlítið svefndrukkinn, í nærbuxunum einum fata. Þú horfir á mig í smá stund úr dyragættinni og ég finn að það fer fiðringur um mig. Síðan gengur þú í áttina til mín, ég passa að snúa tölvunni þannig að hálfnakinn karlmaður birtist ekki á skjánum hjá öðrum á fundinum.

Þú brosir við það og krýpur fyrir framan mig. Hendur þínar strjúka blíðlega yfir nakta fætur mína og upp lærin, léttir kossar fylgja í kjölfarið. Ég finn hvernig snertingin kveikir í mér og veiti þér greiðan aðgang. 

Ofur hægt þá færiru þig nær og nær mínu allra heilagasta. Ég er farin að anda örar og þori varla að hreyfa mig. Ég passa mig samt á að slökkva bæði á myndavélinni og hljóðnemanum áður en ég finn þig gæla varfærnislega við nærbuxurnar mínar, og það sem leynist þar fyrir innan. Ég bít í vörina á mér til að unaðsstuna hlaupi ekki fram af vörum mínum. Hendur þínar finna strenginn á nærbuxunum og ég lyfti mér upp svo þú getir klætt mig úr þeim. Fingurnir gæla við rennandi blauta píkuna og ég býð þig velkominn með því að færa fæturna vel í sundur. Fljótlega fylgja varir þínar á eftir sem umlykja snípinn og fylla mig unaði... 



Ummæli

Vinsælar færslur